Heim
Í dag er sunnudagur, 05 september 2010
Fiskbúðin Kolaportinu
DEPLA

Depla
Karríkryddaður fiskur í ofni með hrísgrjónum PDF Prenta Senda í pósti
800  g  ýsuflök, roðdregin
6  dl  soðin hrísgrjón
2  tsk  karrí
2  msk  hveiti
1  dl  mjólk
1  msk  smjör
1  msk  ólífuolía
1  stk  egg
1  stk  kókosmjöl (má sleppa)
    rifinn ostur
    engiferduft
    salt og pipar

 
Aðferð:

Sjóðið hrísgrjónin og setjið þau í smurt, eldfast form. Skerið fiskinn í bita og kryddið bitana með salti og pipar. Hrærið saman karrí, engifer, eggi, hveiti og mjólk þannig að blandan verði að sléttu mauki. Hitið smjörið og olíuna á pönnu. Dýfið ýsubitunum í karrídeigið og snöggsteikið bitana þar til deighjúpurinn verður stökkur og gulbrúnn að lit.
Raðið fiskbitunum yfir hrísgrjónin í forminu og rífið ostinn yfir. Hitið ofninn í 200 gráður, stráið kókosmjöli yfir réttinn og bakið í 5-7 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað og kókosmjölið er ljósbrúnt að lit. Berið þennan rétt fram með góðu snittubrauði eða naan brauði.
af femin.is

Mambo is Free Software released under the GNU/GPL License.