|
Ýsa með eplum rækjum og rjóma |
|
|
|
|
800gr Ýsuflök - roðlaus og beinlaus
1 epli
100 gr rækjur
100 gr Rifinn mozzarella ostur
Krydd eftir smekk
1 bolli rjóma
Snöggsteikið ýsuna og kryddið með salti, pipar og fiskikryddi eftir smekk. Eplið er skorið í sneiðar og dreift yfir fiskinn, því næst rækjunum, ostinum og rjómanum. Lokið sett á pönnuna og látið malla í 10 mín. við vægan hita. Borið fram með soðnum kartöflum og brauði
af femin.is
|
|
|