Heim
Í dag er sunnudagur, 05 september 2010
Fiskbúðin Kolaportinu
DEPLA

Depla
Límonufiskur í formi PDF Prenta Senda í pósti
Límónufiskur í formi
800 g ýsuflök
safi úr einni límónu (lime)
jurtasalt og svartur pipar
80 g hýðislausar möndlur
2 ½ dl sýrður rjómi (10%)
2 msk. rifinn parmesanostur
2 msk. smjör
½ bolli rifinn ostur
¼ bolli möndluflögur
Skerið flökin í bita og leggið á fat. Dreypið límónusafanum yfir og kryddið með salti
og pipar. Látið standa í kæli í 30-40 mínútur. Setjið möndlurnar í matvinnsluvél og
hrærið þar til þær eru fínsaxaðar, bætið sýrða rjómanum og parmesanostinum út í
og hrærið vel. Bræðið smjörið á pönnu og steikið fiskinn í nokkrar mínútur.
Leggið fiskinn í smurt, eldfast mót og dreifið rjómablöndunni yfir.
Stráið rifna ostinum og möndluflögunum yfir og bakið í 20 mínútur.
Berið fram með hrísgrjónum eða kartöflum.


Mambo is Free Software released under the GNU/GPL License.